Balance I
Common Ground Korpúlfsstaðir. Hvar á ég heima?
Island Korpúlfsstaðir Jafnvægi I, 2021
Common Ground er alþjóðlegt samstarfsverkefni sem tileinkað er hugmyndinni um „heimili“ í samhengi fólksflutninga. Verkefnið er afrakstur samstarfs á milli þriggja aðila: Nútímalistasafnsins Znaki Czasu í Toruń í Póllandi, Skynjunarakademíunnar í Reykjavík á Íslandi og Samtaka litháískra listamanna í Vilnius í Litháen. Það er byggt upp sem vettvangur fyrir samstarf menningarstofnana, listamanna og vísindamanna með það að markmiði að miðla innblæstri, þekkingu og reynslu.
Jafnvægi I
Hús – eða öllu heldur vísun í gróðurhús – þar sem hvert horn hvílir á kúlu. Eins og húsið sitji á fjórum hnöttum eða blöðrum – fljótandi á hafinu. Hlýnun jarðar hefur breytt landamærum og haft áhrif á lífskjör og búsetuskilyrði fólks. Margir hafa misst heimili sín og skjól, og hafa neyðst til að slíta rótum sínum. Með tilkomu internetsins er auðvelt að fylgjast með því sem gerist um allan heim. En það er líka auðvelt að vera fjarverandi í huganum þótt maður sé heima við.
Verkefni leitast við að svara spurningunni hvar á ég heima ? Heimilið býr í hjarta mínu – vinir og fjölskylda, gróður og dýr; staður þar sem ást og tilfinningar fá að dafna og þroskast. Það er jafnframt eins konar alþjóðlegur öruggur staður í hjartanu, þar sem hægt er að tengjast öðrum lífverum og sýna þeim umhyggju.
Common Ground. Where is my home?
Common Ground is an international project dedicated to the idea of home in the context of migration. It is the result of cooperation between three partners – the Centre of Contemporary Art Znaki Czasu in Toruń, the Academy of Senses in Reykjavik and the Association of Lithuanian Artists in Vilnius. It is built as a platform for cooperation between institutions, artists and scientists in aim to exchange inspiration, knowledge and experience.
Balance I,
My art works are often in the form of installations with reference to things in my local environment. I exhibited a part of a greenhouse and called the piece Balance I, a meditation on the global warming that causes human beings, animals and plants to flee from their homeground to seek shelter and livelyhood.
A house, an indication of a greenhouse with each corner tilted on a ball. Like sitting on four global earths or balloons —floating on the ocean.The Global warming has changed borders and affected human living and habitat. Many have lost their homes, their shelters and have been forced to break their roots. With the access of the internet it is easy to know what is happening all around the globe. It is easy as well to not be present when at home.
Home is in my heart, friends and family, vegetation and animals, where love and emotions are free to thrive and mature. Also some kind of a global secure place in the heart to connect and care for other living beings.