Svigrúm / Leeway
Svigrúm
Grafíksalurin Hafnarhús Reykjavík 2023
*Verkið Svigrúm vísar í frumefnin jörð, vatn, loft og eld, unnið með massa, þyngd og aðdráttaraflið.
Innsetningin Svigrúm samanstendur af hringformum sem hanga úr lofti og á þeim hvíla ýmsir fundnir hlutir úr náttúrunni. Myndbandi af sólarlagi á haffleti er varpað á innsetninguna og út kemur víxlverkandi endurvarp og skuggavarp á vegg og gólf. Boðið er upp á að áhorfandinn gangi inn í verkið, verði þáttakandi í ferðalagi og róandi hreyfingum öldunnar.
Video af sjó, umlykur innsetninguna, sólarlag sýnir sjávarföll, öldurnar sem stjórnast af togi tunglsins og verða af flóði og fjöru, gefa frá sér hljóð ákveðin takt/rytma sem má líkja við andardrátt. Hringform úr plexi gleri og speglum hanga úr lofti í strengjum sem halda þeim í jafnvægi, á þeim hvíla steinar eða from sem eitt sinn voru hulstur lífvera eins og kuðungur, ígulker, pétursskip. Þessi náttúrlegu form sem dæmi, kuðungur hefur form gullinsnið og ígulkerið fullkomið hringorm og endurtekningu í mynstri. Innan sem utan hringform er endurvarpa skugga og speglun.
Efni : Kringlóttir speglar og plexigler 70 x 70 cm, og bönd. Ígulker, Pétursskip, baggalútar, glerhallar og rekaviður. Strengir, þræðir og járnklemmur.
Pendúll. Verkið Pendúll er í samtali við hreyfiferla jarðar á sýningar tímabilinu.
Efni: Vikursteinn og band. Steinninn fannst í flæðamáli fjörunnar suður af flugvellinum í Reykjavík)
Endurvarp er samsetning sjö hringforma sem hanga úr lofti og mynda súlu. Andrýmið á milli hringformana mótar rými a milli speglunar og gagnsæis, þar sem efnið endurvarpar umhverfinu til áhorfandans og mynda óendanleg göng. Verkið er tilraun til tengingar milli himins og jarðar. Verkið var einnig sýnt í Hafnarhúsi, Gletta Borgarfjörður Eystri 2021.
Efni: Kringlóttir speglar og plexigler 70 x 70 cm, og bönd. Strengir, þræðir og viðarstangir.
.
Materials: Pumice stone and cord. (The stone was found along the shoreline south of the Reykjavík Airport).